Smáa letrið
Persónuvernd
Síðast uppfært 21. september 2026
Drög. Stefnan er tilbúin til yfirlestrar lögmanns áður en Loga opnar. Vinnsluaðilarnir í 5. kafla eru taldir eins og þeir standa í dag: hýsing, gagnagrunnur og auðkenning eru nefnd með nafni, greiðslumiðlun er ekki valin og bætist við áður en fyrsta greiðsla er tekin.
1 · Hver ber ábyrgð
Ábyrgðaraðili vinnslu er Loga menntun ehf., kt. 540926-0500, Hvannalundi 13, 210 Garðabæ. Fyrirspurnir um persónuvernd fara á loga@loga.is og er svarað innan mánaðar, oftast samdægurs.
2 · Hvaða gögn eru geymd
- Reikningurinn: netfang, dulkóðað lykilorð, nafn ef þú gefur það upp.
- Námsgögnin: svörin þín, hvaða kennslustundir þú hefur lokið, tími sem fer í hverja lotu, mat kerfisins á færni þinni.
- Það sem þú segir okkur sjálf: prófdagur, áætlaður námstími á dag, hvaða braut þú stefnir á, hvaða fög þér finnst þú standa vel eða illa í.
- Greiðslur: hvaða aðgang þú keyptir og hvenær. Kortanúmer fara aldrei í gegnum Loga og eru hvergi geymd hjá okkur.
- Tæknilegt: villuskrár þegar eitthvað bilar (hvað fór úrskeiðis, á hvaða síðu, í hvaða vafra og tæki), notaðar til að laga bilanir. Innskráð: hvaða kennslustundum þú lýkur og hvaða spurningum þú svarar, skráð undir innra auðkenni en aldrei undir netfangi. Engar skjáupptökur.
3 · Til hvers þau eru notuð
Til að láta Loga virka: velja næstu skref, meta færni, halda utan um framvindu og gefa þér aðgang að því sem þú keyptir.
Til að bæta efnið: ef spurning reynist óskýr, tvíræð eða vitlaus sjáum við það í svörunum og lagfærum hana. Sú greining er gerð á samanteknum gögnum, ekki á einstökum nemendum með nafni.
Gögnin þín eru ekki seld, ekki leigð og ekki notuð til að auglýsa neitt.
4 · Heimild til vinnslu
Vinnslan byggir á samningi (þjónustan sem þú keyptir verður ekki veitt án hennar), á lögmætum hagsmunum af því að halda kerfinu öruggu og efninu réttu, og á samþykki þegar kemur að póstlistanum, sem þú getur afturkallað hvenær sem er.
5 · Hverjir sjá gögnin
Loga notar þjónustuaðila sem vinna gögn fyrir okkar hönd. Þeir eru taldir hér með nafni, hlutverki og því landi þar sem gögnin liggja:
- Netlify (Netlify, Inc.) hýsir vefina og keyrir vefþjóninn. Þar verða til vefþjónsskrár með villuboðum. Hýsingin er í Bandaríkjunum.
- Neon (Neon, Inc.) hýsir gagnagrunninn — reikninginn þinn, námsgögnin og pantanirnar. Grunnurinn stendur í Ohio í Bandaríkjunum.
- Supabase (Supabase, Inc.) sér um innskráninguna: netfang, dulkóðað lykilorð, lotur og tveggja þátta auðkenningu. Verkefnið stendur í London.
- Sentry (Functional Software, Inc.) tekur við villuskrám. Gögnin eru geymd í Þýskalandi og engin persónuauðkenni eru send með villu.
- PostHog (PostHog, Inc.) tekur við námsatburðunum sem taldir eru upp í 2. kafla, undir innra auðkenni, og talningu heimsókna á síðunum á loga.is án auðkennis sem fylgir þér milli síðna. Gögnin eru geymd í Frankfurt. Sjálfvirk smellaskráning og skjáupptökur eru slökktar.
- Better Stack (Better Stack, Inc.) kannar með reglulegu millibili hvort vefurinn svarar. Engin notendagögn fara um þá þjónustu.
- MailerLite (MailerLite Limited, ESB) geymir netföngin á biðlistanum og sendir póstinn sem þú baðst um.
- Cloudflare (Cloudflare, Inc.) ver innskráninguna gegn sjálfvirkum tilraunum. Þjónustan sér IP-tölu þína þegar hún er virk.
- Google (Google Ireland Ltd.) — aðeins ef þú velur sjálf að skrá þig inn með Google-reikningi, eða opnar myndband í námsvefnum (sjá 8. kafla).
Greiðslumiðlun er ekki valin. Engin greiðsla hefur verið tekin og engin kortagögn hafa farið neitt. Gáttin verður nefnd hér með nafni áður en fyrsta greiðsla er tekin, og kortanúmer fara aldrei í gegnum Loga.
Flutningur út fyrir Evrópska efnahagssvæðið. Hýsingin (Netlify) og gagnagrunnurinn (Neon) eru í Bandaríkjunum og auðkenningin (Supabase) í Bretlandi. Það er flutningur út fyrir svæðið og krefst viðeigandi verndarráðstafana; vinnslusamningar (DPA) við þessa aðila eru í vinnslu og þessi kafli er uppfærður þegar þeir liggja fyrir. Að færa gagnagrunninn innan svæðisins er verk sem stendur yfir og er gert áður en nemendagögn safnast upp. Sentry og PostHog eru bandarísk félög en gögnin sjálf liggja í gagnaverum þeirra í Evrópu.
6 · Hversu lengi
- Reikningur og námsgögn: meðan reikningurinn er virkur og í tólf mánuði eftir að aðgangi lýkur.
- Bókhaldsgögn vegna kaupa: sjö ár, eins og bókhaldslög krefjast.
- Netfang á biðlista: þar til þú afskráir þig.
- Villuskrár: 30 dagar. Loga geymir engar villuskrár í eigin gagnagrunni — þær liggja hjá Sentry og þakið er stillt þar.
- Námsatburðir í greiningu: tólf mánuðir, eftir það aðeins samteknar tölur án auðkennis.
- Öryggisskrá — aðgerðir stjórnenda, samþykki skilmála og viðvaranir aðgangshliðsins: 24 mánuðir. Hún lifir af eyðingu reiknings, en auðkenni þitt er þá tekið út úr henni og ópersónugreinanlegt merki sett í staðinn, svo eftir stendur hvað gerðist en ekki hver.
7 · Réttindi þín
Þú átt rétt á að fá aðgang að gögnunum þínum, fá þau leiðrétt, fá þeim eytt, fá þau afhent á tölvutæku formi og andmæla vinnslu. Í Loga er hnappur sem sækir öll þín gögn í einu skjali og annar sem eyðir reikningnum.
Teljir þú farið rangt með gögnin þín getur þú kvartað til Persónuverndar.
8 · Kökur
Loga er tvennt: kynningarvefurinn, sem þú lest án innskráningar og ert á núna, og námsvefurinn, sem opnast við innskráningu. Þeir haga sér ekki eins og því er haldið aðskildu hér.
Kynningarvefurinn setur enga köku. Síðurnar á loga.is telja heimsóknir með PostHog (gögnin geymd í Frankfurt) án köku og án þess að geyma neitt í vafranum. Talið er hvaða síða var opnuð, af hvaða vef var komið og herferðarmerkið í slóðinni (til dæmis að hlekkurinn var af Instagram), á hvaða tengil var smellt og að skráningarform var sent. Hver síðuskoðun er ótengd þeirri næstu, ekkert snið er búið til um þig, IP-talan er ekki geymd og netfangið þitt fer þangað aldrei. Síðan man sjálf, í vafranum þínum, hvaðan þú komst fyrst (til dæmis af Instagram) í 90 daga og sendir það aðeins með ef þú skráir þig. Að öðru leyti talar kynningarvefurinn við eitt utanaðkomandi kerfi, póstlistakerfið (MailerLite), og aðeins á því augnabliki sem þú sendir netfangið þitt inn á biðlistann sjálf.
Námsvefurinn er annað mál og hér er það sagt hreint út. Hann setur eina nauðsynlega köku sem heldur þér innskráðri, og auk hennar keyra þar tvö kerfi þriðja aðila sem nefnd eru í 5. kafla: mælingin PostHog og villuskráin Sentry. PostHog geymir EKKERT í vafranum þínum — hvorki köku né staðbundna geymslu. Auðkennið sem tengir atburði saman lifir aðeins í minni þessarar lotu og hverfur þegar þú lokar flipanum, svo það sem þú gerir í dag og á morgun tengist ekki. Hvorugt kerfið auglýsir neitt, hvorugt fær netfangið þitt og hvorugt fylgir þér á vefi annarra, en þau eru rekjarar í þeirri merkingu að þau senda upplýsingar um notkun þína til utanaðkomandi þjónustu. Hvort tveggja er notað til að bæta efnið og laga bilanir, og fellur niður með reikningnum þegar þú eyðir honum. Kaupir þú aðgang bætist greiðslumiðlunin við á sama hátt, meðan á greiðslunni stendur.
Í inntökuprófinu eru valfrjáls myndbönd frá YouTube. Þau eru felld inn um
youtube-nocookie.com og hlaðast ekki fyrr en þú opnar myndband sjálf: smellurinn er
samþykkið og fyrir hann fer engin beiðni til Google. Þegar þú gerir það getur YouTube (Google)
sett sínar eigin kökur og séð IP-tölu þína; um það gildir
persónuverndarstefna Google, ekki þessi. Þú getur
lært allt efnið án þess að opna eitt einasta myndband. Í framhaldsskólaáföngunum
er myndband ekki fellt inn heldur er það venjulegur tengill sem opnast á YouTube í nýjum flipa,
svo þar fer ekkert til Google fyrr en þú velur að fara þangað.
9 · Notendur undir 18 ára
Framhaldsskólahluti Loga er ætlaður nemendum sem margir eru yngri en 18 ára. Við söfnum ekki öðrum gögnum um þá en þeim sem talin eru upp hér að ofan og engum viðkvæmum persónuupplýsingum. Sé skólinn kaupandi aðgangs er samið sérstaklega um hvaða yfirlit kennari fær, og þau eru bundin við námsframvindu í viðkomandi áfanga.
10 · Hafa samband
Allar fyrirspurnir, beiðnir og athugasemdir fara á loga@loga.is.